Vá ég trúi ekki að það séu komnir 8 mánuðir síðan litla prinsessan mín kom í heiminn!

Hún er búin að vera svo lítil eitthvað frá fæðingu enda fæðist hún léttburi eða 2440 gr og hefur verið sem þyngst 5550gr í síðustu viktun fyrir mánuði síðan :o

Hún er enn ekki farin að sitja ein en getur setið með stuðningi, hún er nýlega farin að standa og skríður ekkert, hún er mikið seinni en bróðir hennar var en þetta kemur allt með hennar hraða :D