Undanfarið hefur komið mikið nýtt efni hingað inn og það er bara FRÁBÆRT! loksins orðnar margar mömmur að skrifa hérna! Mjög ánægjulegt!

Sjálf er ég með 3 málefni sem ég er að vinna í! Ætla reyna koma með eina grein á næstu dögum!

Endilega komið með hugmyndir af efni sem þið viljið vita um en kanski treysta ykkur ekki í að koma í orð! Allir stjórnendur á þessu áhugamáli eru góðir pennar og eflaust tilbúin að koma með eitthvað eftir ósk einhvers :)

Endilega haldið áfram að vera endalaust dugleg að senda inn myndir, umræður og greinar!
Alltaf gaman að lesa eitthvað fróðlegt og upplýsa aðra um hluti!

Áfram börnin okkar!
Ofurhugi og ofurmamma