nenni þessu ekki lengur hehe!!

Ég er komin með svo mikinn bjúg! fæ bara náladofa í puttana! á nóttinni ef ég vakna þá get ég ekki sofnað aftur því mér er bara illt í höndunum!!

ég get bara sofið á maganum, vegna stærðar þá get ég vitaskuld ekki sofið á maganum einum saman, þa er vont. þannig ég sef svona á hendinni þannig komi minni álag á kúluna.

Svo er ég me svona skemmtilega grindargliðnun í þokkabót. fokkin lífbeinið er bara ð dreeeepa mig, bara eins og það sé brotnað í tvennt…!
Get ekki staðið lengi við uppvask eða slíkt.

Ég reyni að kæta mig með því að þetta er aaaaalveg að vera búið, þetta er í næsta mánuði og júní er nú að síga á seinni hlutann! þannig þetta styttist!

Ég er með mínar leiðir til að láta þetta virðast sem stysst! eins og t.d. “þetta er í NÆSTA mánuði”
fór inná meðgönguþráðinn inná barnalandi og þar er svona meðgöngulisti og ég taldi allar konurnar (allt í allt eur svona 200 nöfn held ég)
og það eru “bara” 25 fyrir ofan mig þar!! þannig þetat styttist og styttist!!

það er innan við 4 vikur í settan dag hjá mér!!

Mér drulluleiðist ða hanga heima, samt bara búin að vera í veikindaleyfi síðan í byrjun vikunar! En samt hef ekki verið í vinnunni síðan 15 maí, fór í mánaðar sumarfrí og átti að mæta í vinnu 15. júní en var bara látin hætta að vinna…

Ætla bara vona að krílið fari að láta sjá sig frekar fyrr en seinna. Þoli ekki óstundvísi!
Ofurhugi og ofurmamma