lítið ljóð sem ég samdi handa syni mínum.. ég var að vísu búin að senda það inn sem grein.. en það er fínt að hafa það hér líka.. svona líka glæsilegt! ;o)


Þú,
ert litli engillinn minn
Mér þykir vænna um þig
en allt annað í heiminum.
Allt sem þú gerir,
er yndislegt.
Allt sem þú gerir,
gerir mig hamingjusama.
Þegar þú brosir,
þegar þú grætur,
þegar þú hlærð,
þegar þú pissar upp um alla veggi,
þegar þú tætir niður dagblaðið.
Þú ert líf mitt og yndi.
Ég lifi fyrir þig,
ef ég þyrfti,
myndi ég deyja fyrir þig.
Þú ert skærasta stjarnan,
þú ert ljósið í lífi mínu.
Ég elska þig.