Ég hef verið að spá hvernig foreldrar fara að því að sinna börnunum sínum þegar bæði foreldrarnir og börnin eru veik. Sjálf á ég ekki börn, en er búin að vera veik núna síðustu daga og hef ekki einu sinni haft orku til að vaska upp eða lesa og get því alls ekki ímyndað mér hvernig ég hefði getað haft orku til að hugsa um fárveikt barn.
Kveðja, Xenia