Ég held ég sé að setja þennan kork á réttan stað.. ?:s

Það komst í ljós að ég er með aðeins of stóra bumbu miðavið lengd, sem kom mér verulega á óvart því ég var alltaf voðalega ósátt á hvað ég væri með litla kúlu :o
En ojæja ég var mæld með 30 eða 31cm man það ekki alveg :$
Og er á leiðinni í sykurþolspróf núna í febrúar.

Og ég er búin að reyna lesa smá um þetta, en er einhver hérna sem hefur greinst með meðgöngu sykursýki ? og veit framhaldið svo af því ?
Ef ég skildi greinast, hvað það þíðir.
Afsakið stafsetningarvillur og já hvað ég er ekki dugleg að finna réttu orðin og tengja saman orð.
Stundum fer heilinn bara í pásu, hehe

Bætt við 27. janúar 2009 - 19:44
Ég er gengin, 26 vikur og 5 daga ^^