Samkeppnisstofnun hefur bannað Allianz að birta aftur auglýsingu fyrirtækisins sem sýnir lítið barn falla út um glugga.

Samkeppnisstofnun komst að þeirri niðurstöðu að auglýsingin bryti í bága við lög sem banna að börn séu sýnd við hættulegar aðstæður eða leiði til þess að þau eða önnur börn geti komist í hættulegar aðstæður eða geri það sem óleyfilegt er.

Verði banninu ekki fylgt mun Samkeppnisstofnun leggja til við samkeppnisráð að viðurlögum samkeppnislaga um sektir verði beitt.


<br><br><img src=http://www.freakygamers.com/smilies/s/contrib/ruinkai/evilkitty.gif