Ég vildi óska þess að bróðir minn væri enn á aldrinum 1-6 ára.. Allt sem hefur oltið uppúr honum um æfina.. játsí!

Einu sinni fékk hann gat á hausinn (þarna á milli augnanna) og á meðan læknarnir voru að sauma hann þá söng hann fyrir þá “horfðu á björtu hliðarnar!” ;)

Oft þegar við vorum búin að vera “of” lengi í baði þá sögðum við að við værum orðin úldin á tánum og puttunum (vorum með rúsínuputta)
Svo fær hann að fara með leikskólanum sínum í sund einn daginn og aðal fóstran er doldið sona þétt um sig..
Svo þegar mamma sækir hann þá segir hann “Hey mamma hún soffía hún er bara úldin allstaðar!! ég sá það þegar við vorum í sturtunni!” mamma alveg í sjokki.. ekki sagðiru það við hana? “jú ég sagði sko soffía þú ert úldin allstaðar!”
Veslings mamma hihi

Svo átti bróðir minn spariskó sem hann vildi ekki ganga í.. þar til honum var sagt að þetta væru lögguskór! (pabbi er nebla lögga og hann ætlaði alltaf að vera lögga líka)
Svo óx drengur en skórnir ekki.. en minn lét það sko ekki stoppa sig.. það var sko ekkert vont að labba :/

;)<br><br><img src="http://www.hugi.is/bornin/image.php?mynd_id=2445“> <font color=”#FF0000“>Hulda</font> kveður að sinni
******************************************
Ég á svo flotta Heimasíðu! Ligga Ligga Lái!!
<a href=”http://kasmir.hugi.is/hulda"> Kassjmíhr síjðan míjn! </a