Ég fór og lét loksins verða að því að fjárfesta í svona flíshúfu fyrir son minn með nafninu hans á´, ég var búin að draga þetta svo lengi því að ég lét mér ekki detta neitt annað í hug en að þetta kostaði fúlgu.. þið vitið, svona sérsaumað og allt það. En.. ég fór til hennar Höllu hérna á Reyðarfirði og pantaði 2 stk húfur seinnipart miðvikudags, viti menn, um hádegi næsta dag var hringt og húfurnar TILBÚNAR! Jess.. OG kostaði ekki nema 1500 kr stykkið. *hiss*
Og fyrst ég er nú að hrósa henni Höllu hérna langar mig að benda ykkur á að hún er með GEGGJUÐ sængurverasett fyrir unga og saumar í handklæði.. =)