'Eg get bara ekki staðist mátið að segja ykkur smá sögu af dóttur minni sem er 8 ára og vinkonu hennar.Málið er að þær eignuðust báðar litla bræður í vor með ca. 3 vikna millibili og hafa skapast miklar umræður í kringum það.Nú nú í dag kom vinkonan heim með dóttur minni og ég heyrði að þær voru að spjalla saman og legg við hlustir:
“notar litli bróðir þinn Pampers bleyjur” ,“ég veit ekki alveg held það” svo komu þær til mín og spurðu um það sama og sögðu mér það svo að það væri nefnilega þannig með Pampers bleyjurnar að þær væru miklu betri en þrengdu svolítið að maganum.Næsta sem ég heyrði þær vera að tala um að það væri betra að vera með Pampers því að þær væru bara betri.
Það er mikið pælt……<br><br>kveðja,
Harpa
Kveðja