Ég vinn sem sölumaður í raftækjaverslun og núna áðan kom til mín lítill krakki og fór eitthvað að tala við mig. Meðal annars spurði hann mig til hvers eitt sjónvarp þarna væri og ég sagði að það væri til að fylgjast með mismunandi stöðum í búðinni. Þá sagði hann: “Þetta er ekki búð. Þetta er símaskrá.”…
og fór svo að útskýra fyrir mér afhverju ég væri að vinna í símaskrá.

Dáldið skemmtilegt :)