að hrinda af sér bröndurum :)
Hún systir mín semsagt.

í fyrra flutti ég til reykjavíkur og félagi minn hann Gaui ákvað að vera agalega sniðugur og gaf mér kind úr adam og evu… agalega flott kind og svona…
Systir mín hafði voða gaman af þessari uppblásnu kind sem jarmar… þess ma til gamans geta að hún hefur aldrei spurt af hverju þetta gat sé aftan á henni…
En já svo flutti ég aftur heim seint á síðasta ári og um helgina kíkti litla systir mín í heimsókn með vinkonu sína, og þær voru í þessum helvítis bangsaleikjum sínum (hefði aldrei átta ð kaupa þetta tuskudýr handa henni) og kemur svo inní herbergið mitt haldandi á kindinni og segir “heitir ekki kindin gaui?” haha ég dó úr hlátri… gaui gaf mér kindina en kindin á nafnið BeBe!

Ekkert fyndið kanski að segja frá þessu.. en ég hló dátt yfir þessu..
Ofurhugi og ofurmamma