Er einhver hér sem er að leita að au pair fyir sumarið, annað hvort fyrir sig eða aðra?
Mig langar nefnilega mjög til að vera au pair en þar sem ég er í menntaskóla get ég það bara yfir sumarfríið.
Ég vil helst vera hjá íslenskri fjölskyldu og þess vegna er ég að skrifa þetta hérna.
Ég er barngóð og passa reglulega börn á aldrinum 1-7 ára, þrír strákar og ein stelpa, en það er sitthvor fjölskyldan.
Mig langar mest til Englands, Frakklands, Ítalíu, Þýskalands eða Danmerkur, þar sem ég tala bara ensku (nokkuð góða þó), skóla dönskuna og smá í þýsku.

Endilega hafið samband :)