Hæ Hæ…

Svo er mál með vexti að ég kem til með að hafa hana litlu frænku mín hjá mér yfir helgina.
Hún er þriggja ára og ég hef ekki hugmynd um hvernig maður skemmtir þriggja ára píslum öðruvísi en að stilla þeim fyrir framan imbann. Imbinn kemur ekki til greina hjá mér… Frænka litla er nebbla í heimsókn hjá mér en ekki vídjótækinu (hehe).
Veit einhver um skemmtilega leiki, spil eða eitthvað í þá áttina sem hentar okkur frænkunum?