Verð að monta mig, ég er svo stolt! :D Ég var að eignast lítinn frænda núna fyrir stuttu, litli prinsinn verður skírður núna um páskana og allir glaðir með það…nema hvað. Haldið þið að pabbi hans hringi ekki í mig núna um daginn og ég sé beðin um að spila á fiðlu í skírninni :D :D :D er svo stolt yfir að fá að taka þátt í þessari mikilvægu og fallegu athöfn ég er að springa :D :D :D

Varð bara koma þessu frá mér ;)

Bætt við 11. mars 2007 - 23:38
Þess má geta að lagið sem við fundum og ég mun spila heitir Þakklæti og er eftir Magnús Kjartansson (flutt af Trúbrot ef það hringir bjöllum ;))