Strákur sem ég veit um vildi ekki taka til í herberginu sínu, mömmu sinni til mikillar mæðu.. Svo mamman sagði við hann “ég nenni ekki að hafa dótið þitt liggjandi á gólfinu hérna, lengur, annað hvort tekuru það til núna eða ég hendi því!” þá segir sá litli “mér er alveg sama, hentu því bara” Svo mamman fer og nær í svartan ruslapoka og byrjar að setja dótið hans í pokan.. Eftir smá stund segir sá stutti hálf snöktandi “mamma.. ætlaru í alvörunni að henda dótinu mínu!”


Svo er það stelpa sem tók sig til einn daginn og krassaði á vegginn inní stofu.. Mamman varð náttúrulega ekki mikið glöð og rak stelpuna inní herbergi.. Svo kemur stelpan fram eftir smástund mjög leið “mamma… elskaru mig þá ekki lengur?”

Það er ekki annað hægt en að brosa við þessu ;)<br><br>******************************************
<a href="http://kasmir.hugi.is/hulda"> Kassjmíhr síjðan míjn! Slatti af nýju drasli komið</a