Ég var að fara í partý í gær, og ég er vanalega ekkert neitt voða “skvísa” geng bara í því sem mér finnst þægilegt er aldrei máluð.

en síðan í gær… ákvað ég svona aðeins að taka mig almennilega til… málaði mig og allt síðan kemur systir mín til mín… voða alvarleg og segir… “**** *** þú ert ótrúlega sæt, þú verður lang sætust í afmælinu” fannst þetta bara svo ótrúlega krúttlegt… knúsaði hana alveg í klessu… :) var næstum farin að gráta af því að hún var svo einlæg þegar hún sagði þetta og mér fannst þetta svo yndislegt.
Vel á minnst hún er 6ára.

síðan í dag… vorum við að fara út og ég var að reyna að koma henni í föt og hún var ekkert að hlýða mér svo ég náði bara í hana og klæddi hana í og hún var alltaf að vesenast eitthvað á meðan, að bíta og sleikja á mér hending og hanga svo í henni svo að ég gat ekkert klætt hana í, ég rakst svo eitthvað í hana og hausinn á henni rakst í vegginn og hún horfði á mig geðveikt sár og sagði… “**** *** þú ert ógeðslega leiðinleg, og vond og ég hata þig” ég sagði við hana bara “ææ, en leiðinlegt” en vá hvað það var samt sárt… haha… mér þykir auðvitað illilega vænt um littla gerpið þó hún pirri mig oft…
All Together Now