Á einhver skemmtilega og/eða kannski vanræðalega sögu af sér sem barn…

Mamma mín lætur mig nú vita oft og mörgum sinnum að ég var mjög frekt barn… Fór einhverntíman með henni og ömmu í búð og mig langaði í jarðaber en mamma hafði sagt nei. Ég hafði nú ekki orðið ánægð með það og öskraði að hún gæfi mér aldrei neitt að borða…

Svo til að sýna hvað amma mín er dugleg að láta mömmu skamma mig..
Ég var eitthvað um 1 eða 2.. Fór í búð með ömmu og mömmu. Ég var alltaf að reka tunguna út öðru hverju og hún mamma skammaði mig alltaf fyrir að gera þetta. Svo held ég löngu síðar kommst hún afþví að amma hafði alltaf verið að reka út tunguna og ég hafði gert það á móti…
Súkkulaðihjartað <3