Ég verð að segja ykkur frá einu sem litli púki segir alltaf þegar hann missir eitthvað í gólfið eða hellir niður.
T.d um daginn þá var hann eitthvað að fikta í litlum trébíl (hann er sko bílasjúkur) sem ég hef upp á punt í hillu og hann missir hann í gólfið og dekkin brotna af.
Ég ætlaði að fara að æsa mig þegar sá stutti segir “Obbodí” (stundum segir hann “obbosí”) og verður voðalega miður sín.
Eins og gefur að skilja þá gat ég ekki annað en brosað að þessu…
Langaði bara að deila þessu með ykkur!
Kv,
Pernilla