Það er frekar erfitt að viðurkenna svona lagað þar sem þetta einstaka atvik er frekar fáránlegt og eitt af þeim fáránlegustu sem ég hef lent í:S

Um daginn var ég bara í makindum heima hjá systur minni…..Börnin hennar eru 2 strákar, einn 6 ára á árinu og einn 2 ára á árinu. Sá 2 var veikur og mamma mín og ég vorum fengnar til að passa. Þessi 6 ára var eitthvað úti að leika sér í góða veðrinu en allt í einu kom hann inn og sagði að 2 stelpur um 7-8 ára aldur væru að stríða sér.
Ég fór með honum og var að tjékka aðeins á þessu og sagðiþeim ekki að veraaðstríða, eflaust hlustuðu þeær ekkert á mig, en þrátt fyrir það fór ég aftur inn.

Svo bara mjög stuttu seinna kom sá 6 ára inn, náði í tréklumb og hljóp aftur út. Aftur kom hann inn og sagði að núna væru þær að lemja hann með prikum.
Ég var rekin útí annað sinn til að sjá um þetta og byrjaði bara að segja stelpunum að hætta að lemja annað fólk í hausinn, með prikum og að þetta væri bara fáránlegt!
Þær voru bara eitthvað að malda í móinn og héldu áfram að sveifla þessum prikum, sem voru í raun svona tjaldstengur.

Þá sagði ég bara við frænda minn, þennan 6 ára að við skulum bara kom út í garð og gera eitthvað þar, ekki vera með þessum leiðinlegu stelpum. Við gerðum það en þá höfðu þær hlaupið þangað og labbað inn um hliðið sem var opið.
Ég sagði bara einfaldlega hvort þær vildu fara burt en ein öskraði bara nei! og eitthvað og ég bað hana nokkrum sinnum að fara þangað til að ég var orðin svo pirruð á henni og ýtti henni aðeins. Hún hafði eiginlega neglt sér niður og ekki ætlaði ég mér að ýta henni svo hún myndi detta svo ég ýtti henni bara aðeins. Svo pirraðist ég svo mikið að ég tók hana bara upp og svona “fleygði” henni úr garðinum.
Svo fáránlega vildi til aftur að hliðið vildi ekki lokast og stóð ég þarna lengi að bisa við það. Þá fóru þær að sveifla þessum stóru tjaldstöngum, ibbandi kjaft eins og mýflugur og ein hitti mig svo í hausinn. Ég lét sem ekkert væri þótt þetta hafi verið frekar óþægilegt en ég varð svo reið, en ég bara vildi ekki lemja hana þar sem móðirinn hefði líklegast farið í mál við mig eða þvílíkt…..
Svo ég var bara ennþá að bisa við hliðið en svo gafst ég bara upp á því og labbaði bara inn með því að segja við frænda minn að hann fengi ís ef hann kæmi inn, því sá stutta fannst bara frekar spennandi að vera þarna að rífa kjaft við stelpurnar.

Sko, þetta var bara aðallega sagt til að benda á það hvað krakkar eru orðnir dónalegir og leiðinlegir við alla eldri, jafnvel fullorðna og bara alla sem þeir hitt og vilja rífa kjaft við…….
Ég bara þoli það svo innilega ekki að bara váá….
Arg…..
Hvað er eiginlega málið fyrir þá að vilja svona mikið rífa kjaft??
Hafa þau ekkert annað að gera og bera þau enga virðingu fyrir eldra fólki!?