Jæja, litli gæjinn minn sem er nýorðinn 5 mánaða er næstum farinn að skríða, hann er farinn að ormast áfram á ofurhraða, og er farinn að rífa og tæta allt sem verður á hans vegi. Og ég er að springa úr monti yfir þessu hehehehe, sennilega verð ég farin að óska þess eftir 2-3 að vikur að hann gæti nú ekki hreyft sig svona mikið strax ;D
Svo er hann að fá 2 tennur, hann er með rosalega stórar kúlur í neðri gómnum, og klæjar ógurlega, þannig að ég held að þetta sé um það bil að brjótast í gegn.

En takk fyrir mig, líður helmingi betur núna eftir að ég fékk að montrassast smá.

Endilega segið frá hvernig gengur með ykkar unga. <br><br>——————————
“Work like you don't need the money, love like you've never been hurt and dance like no one else is watching”
———————————————–