Hæhó, vitið þið hvort að það sé boðið upp á einhverja leikfimi eða hreyfingu fyrir börn sem eru 3 ára ?
Stelpan mín sem er 3 og 1/2 árs er með mjög mikla hreyfiþörf, og mig langar að sjá hana virkja hana öðru hvoru í einhverju skipulögðu, líka til að aga hana smávegis. (held að það sé hollt að mamman og pabbinn sjái ekki alfarið um að aga börnin sín)

Þannig að ef að þið vitið um einhvern sem er með ballet, fimleika, dans eða leikjanámskeið fyrir svona litla sæta orma endilega látið mig vita :)
Megir líka segja mér hvernig ykkar börnum líkaði ef að þau hafa farið á eitthvað svona námskeið :)<br><br>——————————
“Work like you don't need the money, love like you've never been hurt and dance like no one else is watching”
———————————————–