Ég á eina 17 mánaða sem er fyrir löngu síðan búin að komast upp á lagið með hvernig maður bræðir mömmu sína. Ef ég er eitthvað að byrsta mig við hana þegar hún er að gera eitthvað sem hún má ekki, þá hallar hún höfðinu undir flatt, brosir sínu blíðasta, setur upp hvolpaaugun og segir “hæ, hæ” með sinni krúttlegustu röddu, síðan tekur hún utan um mann og smellir einum kossi á kinnina. HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM ER HÆGT AÐ VERA STRANGUR ÁFRAM??? Oh hvað hún kann á mann…
Kveðja,