Mér varð bara illt þegar ég las þetta,

mbl.is
Erlent | 20.06.2001 | 23:09

Móðir drekkir fimm börnum sínum
Móðir á fertugsaldri játaði í dag að hafa drekkt fimm börnum sínum á heimili sínu í Houston í Texas að sögn lögreglunnar í Houston í dag. Börnin voru á aldrinum sex mánaða til sjö ára. Ekki hefur fengist skýring á því hvað konunni gekk til.

„Fjögur barnanna lágu á rúminu. Þau voru látin þegar að var komið," er haft eftir John Canno, lögreglumanni í Houston. Fimmta systkinið fannst hins vegar látið í baðkarinu, sem var í næsta herbergi við svefnherbergið.

Lögreglan hefur ekki gefið upp nafn konunnar en segir að hún sé 36 ára. Svo virðist sem hún hafi drekkt börnunum fimm í baðkarinu. Krufning á þó eftir að fara fram því til staðfestingar.

Konan hefur játað á sig verknaðinn og var í dag handtekinn og flutt á lögreglustöðina í Houston. Að sögn lögreglunnar var það hún sjálf sem tilkynnti um verknaðinn.