3 ára (apríl '01) lítið notaður Emmaljunga kerruvagn til sölu.

Hann er í 2 pörtum, burðarúm með innyggðu flugnaneti í svuntu, bogar neðan á því svo að hægt sé að rugga því ef það liggur á gólfi.
Það er eggjabakkadýna í honum, sem og “loftræsting”

Á kerrustykkinu er hægt að leggja bakið alveg niður, góð svunta og 5 punkta innbyggt öryggisbelti.

Vagninn er með loftdekkjum, svartri álgrind og er mjög léttur.
Skermurinn og burðarúmið er hvítt að innan með ljósum doppum, og dökkblátt að utan með endurskini.
Kerrustykkið er dökkblátt með endurskini.

Vagninn er mjög léttur og meðfærilegur, og hægt er að stilla hæðina á handfanginu.
Mér var sagt að hann ætti ekki að upplitast, og það hefur staðist.
Hann er vatnsheldur, en ég nota þó alltaf plastið ef það er rigning ..

2 börn hafa notað vagninn, en mjög lítið notaður samt .. er svo löt að fara út að labba heh :)

Kostaði nýr 80 þúsund, var að spá í að reyna að fá 40 þúsund fyrir hann .. enda lítur hann mjög vel út.

Sendið skilaboð, svarið póstinum eða hringið í 691-5487 ef þið hafið áhuga. <br><br>———————————————–
<i>Mundu að þú kennir fólki hvernig það á að koma fram við þig .. </i
———————————————–