Ég var að spá í það hvort þið gætuð ekki hjálpað mér smá. Ég á stjúpdóttur sem var greind með athyglisbrest um daginn eftir eitt viðtal við lækni þar sem hún var látin teikna eina mynd. Móðir hennar var að segja mér og pabba hennar að hún væri greind með athyglisbrest á mjög háu stigi. Nú erum við engan vegin sátt við þetta og viljum fá álit annars læknis. Getur ekki einhver bent okkur á góðan lækni? Við viljum endilega fá faglegt mat á þetta þar sem farið væri ofan í félagslegan bakgrunn barnsins.