Var að horfa á Dr.Phil rétt áðan um börn. Hann var að kenna barni á minna en einum degi að nota koppinn. Hann kenndi mæðrum aðferðina. Gott ráð að vera með pissudúkku, nefna hana með nafni og láta hana fara á koppinn nokkrum sinnum fyrir framan barnið. Alltaf er verið að tala við dúkkuna. Barnið þarf að sjá að dúkkan er raunverulega að pissa. ÞEtta er endurtekið svona 9 sinnum. Dúkkunni er auðvitað hrósað.

Svo má líka segja við barnið: “Stína” dúkka þarf að fara á koppinn sinn, viltu sýna henni hvar baðherbergið er og hjálpa henni að fara á koppinn?