Ég var að eignast frænda í gær en frétti ekki að þessi fyrr en núna. Frænka mín eignaðist þetta barn með kærastanum sínum og þetta er annað barnið hennar, hún á einnig annan strák sem heitir Fannar og er þriggja ára. Ég hélt alltaf að þetta yrði stelpa því hún átti strák fyrir en núna á hún bara tvo stráka. Pabbi minn var að hringja í mig og segja mér þetta og ég er ógeðlega æstur. Ég hlakka mjög mikið til að hitta barnið.

Barnið var sextán merkur, fimmtíu og þrír sentímetrar á hæð og fjögur kíló. Lillinn var fæddur með keisara skurðu og fæddist þremur eða tveimur og hálfum vikum seinna en hann átti að fæðast. Ég heimsókti frænku mína held þremur eða tveimur dögum áður en hún fæddi og maður sá hvað bumban var orðin risastór og þá var hún líka komin tvær vikur yfir tímann. Það eina sem ég er að hugsa núna um er það hvenær ég fái að sjá litla frænda minn því ég elska öll lítil börn og sértstaklega þessi pínkulitllu. Núna á ég þrjá ltlla frændur, tvo sem eru þriggja og einn 1 dags gamlann.

Kveðja Birki