Hæ, hó allir. Það hefur ýmislegt gerst hjá okkur undanfarið. Guttinn er orðinn 7,5 mánaða og er farinn að skríða fyrir ca. 2 vikum. Hann er kominn með tvær tennur, framtennur í neðri góm. Hann er líka farinn að standa upp við húsgögn og í rúminu sínu, og er alltaf að detta og meiða sig. Hann getur sest upp sjálfur og er bara alveg ofsalega duglegur strákur, gerir mömmu og pabba ofsalega stolta, hi hi ;o)
Það snjóaði hérna í gær svo að við fórum í göngutúr á snjóþotu og það var gaman en hann sofnaði á leiðinni heim, ofsalegt krútt :-)
Langaði bara að deila þessu með ykkur, kveðja cinnemon.<BR