Ég á lítinn frænda sem var að byrja í skóla núna í haust. Hann býr útá landi, og ég fór að heimsækja hann og fjölskyldu hans í sumar. Einn daginn var haldin hátíð með brúðuleikhúsi og alles, og við fórum auðitað og horfðum á. Litli guttinn hafði aldrei séð annað eins, og þegar sýningunni var lokið klappaði hann af lífi og sál og sagði svo: ,,Þetta var gaman. Spólum til baka."

Hehehe…
Því dýpra sem þú kafar, því minni líkur eru á að þú komist upp aftur… og við munum öll drukkna á endanum… mbwúhahaha… haha… ha?