Ég veit ekki hversu margir hérna eiga börn á aldur við minn (er að verða 2ja ára) en mig langar svo að vita hvort ykkar börn séu eitthvað svipuð.
Hann er núna kominn með litaæði, hann fyllir hverja litabókina á fætur annarri, heilu blaðabunkana og svo er hann svo einbeittur að það hálfa væri nóg. Hann var reyndar byrjaður að krota á allt sem hann gat krotað á (þ.á.m sjónvarpið, sjálfan sig og tölvuna) en við geymum núna litina í góðri fjarlægð frá honum annars er voðinn vís…
Kveðja,
Pernilla
<BR