Jæja þá hefur hún dóttir mín breyst í lítinn páfagauk.
Það er alveg sama hvað maður gerir hún hermir eftir öllu og hlær svo bara að öllu saman.
T.d þá má maður ekki geyspa, hnerra, hósta, gera neitt með höndunum eða segja nokkuð þá bergmálar það.
Til dæmis fórum við út í búð fyrir nokkrum dögum og ég sagði við hana að þyrftum að kaupa banana og setti banana í körfuna og þá leit hún á bananana og ég sagði henni að þetta væri banani sagði hún þá bani.
Gaman væri að vita á hvaða þroskastigi börnin ykkar væru?
Í endalausu stuði.
Krusindull<BR