Sælir(ar) hugarar,

Ég var að fá einhvern ógeðfeldasta auglýsingar pésa sem ég hef séð innum bréfalúguna, þessi tiltekni pési er frá flokki ungra Vinstri-grænna, þetta er sent inn til manns með yfirskriftini: KRAKKAR! getið þið hjálpað orrustuflugmanninum að sprengja íraska radsjárstöð? og þetta lítur út eins og völundarhús og siðan koma valmöguleikarnir, Æ-Æ þú sprengdir Sjúkrahús,Nei Nei ekki moskuna,þú hittir íbúðarhús og DRAPST KONU OG SEX ÁRA GÖMLU STELPUNA HENNAR, Búmm þetta var skóli, og síðast; Til hamingju þér tókst að bjarga hinum frjálsa heimi og lýðræði vei !, hvernig voga þessir “pólitíkusar” sér að reyna þennan viðbjóð á börnin mín, einhvernvegin held ég að litlum hjörtum yrði bilt við ef þaug myndu ekki geta þetta í fyrstu tilraun, allavegna vildi ég ekki þurfa að útskýra fyrir mínum börnum að þetta sé ekki svona…eða seigja þeima að þaug hafi ekki drepið konuna og stelpuna, mér er fyrirmunað að sjá hvernig svona auglýsingar stefna á að hjálpa málstaði Vinstri-hreyfingarinnar græns framboðs!

Endilega sendið inn ykkar skoðanir á þessu !


Kv.
Dragon