Hæ,hæ. Ég er ung, einhleyp móðir með lítinn strák sem verður tveggja ára í apríl.
Okkur vantar ábyrga, heiðarlega og lífsglaða manneskju sem getur tekið að sér að sjá um hann á meðan ég vinn.
Ég er að vinna vaktavinnu sem er u.þ.b 15 dagar á mánuði en stundum meira, þannig að þetta þarf að vera einhver sem er tilbúinn að vinna hérumbil alfarið við þetta. Viðkomandi má ekki vera undir átján ára aldri.
Þetta fyrirkomulag er ekki langs tíma heldur aðeins 3-5 mán. þannig að um sumarvinnu getur verið að ræða.
Hægt er að taka til athugunar að viðkomandi búi hjá okkur, þannig að ef þú ert utan af landi þá gæti þetta verið skemmtileg tilbreyting. Við búum í fallegu húsi á Álftanesi.
Laun eru samkomulagsatriði.
Áhugasamir, látið mig vita..og ég svara um hæl öllum frekari spurningum.
Kveðja annakol:)