Dóttir mín sem er 4 ára fór með ömmu sinni og afa í kirkjugarðinn um áramótin að skoða ljósin og heimsækja leiðin hjá langa ömmu hennar og afa. Það voru einhverjir byrjaðir að skjóta upp í nágrenninu og mín var frekar smeik og byrjaði að frussa svona út í loftið, svo segir hún: Amma ég er ekki að frussa á Guð, bara flugeldana. Svo gisti hún heima hjá ömmu sinni og afa og um morguninn skríður hún upp í og stríkur ömmu sinni um andlitið og segir: Amma það var svo gaman í skemmtigarðinum í gær og svo rosalega fallegt. Mamma fattaði ekki alveg hvað hún var að tala um og spurði hana hvaða skemmtigarð hún væri að tala um og þá sagði mín: Nú þar sem þú þekkir allt fólkið í jörðinni :)
Mér fannst þetta alveg drep fyndið :)
Kveðja
HJARTA.<BR
Kveðja