jæja ég veit nú ekki hvar ég gat sett þetta.. en mig langar nebla að segja ykkur frá dotlu fyndnu sem kisan mín gerði í dag.. ég veit að þetta er Börnin okkar.. en þar sem ég á ekkert barn þá lít ég nú bara á köttin minn sem litla barnið mitt..

allavega.. Hann er alltaf að gera eitthvað af sér sem hann má ekki gera.. og ef hann er á einhverjum stöðum þar sem hann má ekki vera þá hefur hann svo hljótt um sig svo engin finni hann… Hann má t.d alls ekki vera inní mömmu herbergi (fór nebla einu sinni þangað inn og meig í rumið hennar) en já hann var tindur i dag.. ég fann hann hvergi og hann fer aldrei einn ut.. ég leitaði af honum allstaðar.. kallaði og kallaði á hann.. vanalega svarar hann mer á móti eða kemur þegar ég kalla.. en nuna.. þá heyrðist ekkert!
mér datt nátla strax i hug að hann væri að gera eitthvað af sér eða hann hefði sloppið út.. svo ég fór að leita af honum.. fór svo inni mömmu herbergi.. kikti undir rum, inni skapa, i hillunum… og svo alltí einu heyrði ég pínulítið “atsjú”
hann hnerraði og kom upp um sig! þetta var ekkert smá fyndið og eins og lélegt atriði úr bíómynd!

langaði bara aðeins að deila þessu með ykkur :/<BR