Ég var að passa sex ára frænku mína um daginn. Þar sem frændi var að passa, þá gekk hún á lagið og fékk sér konfekt mola, þó svo að það væri ekki laugardagur. Ég var eðlilega ekki alveg sáttur við það, og spurði hvort hún mætti fá konfekt núna. Mín var snögg að svara. “Ég er að plata Karíus og Baktus út úr holunum sínum, svo að þú getir náð þeim með tannburstanum”.
Nú ég gat ómögulega mótmælt þessu, svo að um leið og nammið var búið, þá fórum við á Karíus og Baktusveiðar.
Kveðja habe.