Eins og flestir foreldrar vita koma jólsveinarnir bráðum í
bæinn, nánar tiltekið 11. desember. Í ár mun LFMH (leikfélag
Menntaskólans við Hamrahlíð) bjóða uppá góða
jólsveinaþjónustu. Hægt er að fá jólsveininn til þess að ganga
í kringum jólatréð og syngja jólalög á jólaskemmtunum eða
nýta sér hina svokölluðu pakkaheimsendingu, þ.e.
jólasveinninn kemur heim að dyrum með pakka handa
börnunum sem foreldri hefur útvegað sveinka. Þessi þjónusta
gildir frá 11. dessember til 14.00 á aðfangadag.
ATH. einnig er hægt að leigja jólsvein til þess að koma pakka
til skila til vina og vandamanna.

Pakkaheimsending kostar einungis 500 kr. á hvern jólasvein.
Jólaskemmtun kostar 7.500 kr. á hvern jólasvein.

Fáðu nánari upplýsingar eða bókaðu jólsvein á lfmh@nfmh.is
eða hringdu í síma 691-1614/661-0444.