Þessi saga gerist þegar bróðir minn er 3 og hálfsárs.
Þetta var í nóvember og mikill snjór úti.
Bróðir minn var úti að moka snjó fyrir útan húsið okkar og þegar hann var búinn að vera slatti lengi að moka snjó kom hann inn alveg lafmóður og kófsveittur og sagði við mömmu. Oo.. þessi guð, hann getur aldrei tekið til eftir sig. Og mér finnst þetta alltaf jafn fyndið.
Ég tek það fram að hann var nýfarinn að vera á leikskóla og þar er margt sagt og margt brallað.
Krusindull