Mig langar til að spyrja fólk um eitt.

Hér fyrir 15 til 20 árum (kringum 1982-1987) var til sýningar á RUV mjög svo fræðandi efni um grunn eðlisfræðinnar fyrir börn og unglinga. Inn á þessa þætti var talað á íslensku.

Mér skilst að það sé ekki nokkur leið að fá þetta endursýnt hjá RUV né nálgast þetta á annan máta. Þessa vegna langar mig að spyrja hvort einhver hafi tekið þetta upp.

Er nú komin með börn sem þyrstir í fræðslu og eins og við vitum eru sumir krakkar límdir við kassann.

Alli