einn 4ra ára frændi kærasta míns hringdi í foreldra kærasta mín og sagði:“ hæ, ég heiti X Xson(segi ekki rétt nafn hans hér) ég kúkaði í koppinn og skrúfan kom.” þetta hljómaði fyrir þeim einsog í kvöldfréttum í sjónvarpinu. En þau höfðu ekki hugmynd um hvað hann væri að fara með skrúfutalið. Þá hafði hann óvart gleypt skrúfu í leikskólanum og þurft að fara á slysó í röntgen. Pabba hans fannst myndin svo flott og langaði að eiga hana til minningar en hann mátti það ekki. Ekki spyrja mig af hverju ekki. En svo kom að því að hann kúkaði í koppinn og skrúfan kom. :D