Ég æta að deila með ykkur því sem henti fjölskyldu mína í fyrra. Ég á litla systur sem er fjögurra ára, var þriggja þegar þetta gerðist. Við búum í fjölbýlishúsi og nágrannar okkar eru flest allir ágætisfólk, allir nema ein fjölskylda sem kemur frá Filippseyjum, er ekki rasisti by the way. Systir mín lék sér oft við strákana sem voru þrír á aldrinum 7-11 eða 12. Mér líkaði mjög illa við að hún léki við þá þar sem ég hafði orðið vitni að nokkrum leiðindaratvikum, m. a voru þeir að bera sig fyrir framan aðra krakka. Ég nefndi það við mömmu en hún sagði að allt væri í lagi, s.s enginn hlustaði á áhyggjur mínar. En einn daginn breyttist það. Litla systir mín kom hlaupandi inn í óðagoti og sagði orðrétt “Þeir klæddu mig úr og létu mig koma við sig”. Ég man þetta enn eins og þetta hafi gerst í gær. Mamma náði síðan að draga meiri upplýsingar út úr henni og kom þá m. a í ljós að þeir höfðu nuddað sér í hana. Mamma talaði við barnaverndarnefnd og lögreglu en ekkert var gert, allavega ekkert sem skipti máli. Þau fluttu stuttu seinna. Mér bara finnst ótrúlegt að þeir hafi komist upp með þetta því að þetta eru greinilega upprennandi barnaníðingar. Sjö, níu og ellefu ára takk fyrir! Enn þann dag í dag þegar ég sé þessi óféti er ég við það að bresta í grát af bæði reiði og ógeði.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa grein á þessun áhugamáli er sú að þetta snertir fyrst og fremst foreldra og aðstandendur, og ég vildi einnig sýna að aldrei er of varega farið varðandi leikfélaga barna.
Með bestu kveðju Helga