Hérna er smá svona sem ég samdi handa dóttur minni
og langaði að deila þessu með ykkur ;)




Spegill spegill herm þú mér
Hver hér á landi fegursta prinsessan er
Elva Björg það er, segir spegillinn mér.

Bros þitt bræðir mig, hlátur þinn kætir mig
útgeislun þín og lífsgleði smitar mig.
Í leikina fer með þér—ég aftur smábarn er
Þú dregur fram það besta í mér,
vonandi er það eitthvað sem ég get gefið þér.
Ég mun reyna að bregðast ekki þér,
með ást þína í mínu hjarta, með ást mína í þínu hjarta,
munum við styrkjast og þroskast, eiga gleðistund bjarta
Ég ekki gallalaus er, en mun gera mitt besta í að leiðbeina þér
Hvert sem ég fer, hvar sem ég er,
mun hjartað mitt alltaf vera hjá þér.
Mundu eitt—elskan mín
Ég er vinur þinn, þú ert vinur minn,
ég er pabbi þinn, þú ert dóttir mín.


Pabbi
—————————–