Ég var að lesa á www.mbl.is áðan og rak augun í grein sem ég varð slegin yfir.
Greinina er hægt að skoða á slóðinni
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=8 37614
Einnig er hægt að skoða klippu úr öryggismyndavél á slóðinni
http://www.msnbc.com/news/810533.asp?0si=-&cp1=1

M óðir sem barði barn sitt gaf sig fram í kvöld

Móðir, sem talin er hafa slegið og hrist 4 ára dóttur sína í bíl utan við verslunarmiðstöð í Indiana í Bandaríkjunum gaf sig fram við lögreglu í kvöld. Myndir, sem teknar voru með öryggismyndavél af barsmíðunum, voru sýndar í sjónvarpi um öll Bandaríkin í gær og þekktist konan á myndunum.
Konan, sem heitir Madelyne Gorman Toogood, og er 26 ára, kom á lögreglustöð ásamt lögmanni sínum í kvöld, átta dögum eftir árásina. Dóttir konunnar var með henni þegar hún gaf sig fram. Samkvæmt handtökuskipun, sem gefin var út á hendur Toogood í gær, er hún grunuð um misþyrmingar á barni en viðurlög við því eru allt að 3 ára fangelsi.

Ég verð að viðurkenna að ég er hrikalega slegin við að skoða þetta.
Hvað er það sem rekur fólk til að gera svona ?