Ég er að fá sjokk! Er ég bara gamaldags kannski? Ungar/Litlar stelpur í dag 10-13 ára eru farnar að hafa áhyggjur af því hvernig þær eigi að vera klæddar til að ganga í augun á strákum.
Ég fékk vægt sjokk þegar litla frænka mín 11 ára bað mig um að fara með sér í Top Shop að kaupa g-streng með sér því að allar stelpurnar í bekknum gengu í sollis. Svo er hún farin að nota maskara og vesen. Ég sá svo bekkjarmyndina hennar og þá voru allar stelpurnar með maskara og gloss. Gloss er kannski í læ en marr!
Þegar ég var yngri þá var bara skellt sér í joggingbuxur og peysu og farið í skólann og leikið sér. Núna sitja stelpurnar 11 ára og tala saman um stráka og vesen. Ég hélt að allt þetta kæmi með gelgjunni en það hefur greinilega eikva breyst í gegnum árin.