Ég var að skoða eina heimasíðu þegar ég rakst á lítinn glugga með mynd af barni miðandi skammbyssu og yfir myndinni stóð NRA (national rifelman association's). Ég ákvað að skoða hvað væri þarna og ég fékk hroll þegar síðan opnaðist.
Þarna voru börn niður í 3 ára aldur kennt að meðhöndla og skjóta vopnum og flest öllu áttu nokkrar byssur sjálf. Ein stúlka sem var 5 ára fékk riffil frá föður sínum í gjöf vegna þess að hún var svo þæg í bílnum! Einni á þessari heimasíðu er kennt hvernig eigi að miða byssu, meðhöndla og skjóta. Keppnir eru haldnar og verðlaun veitt fyrir skotfimi. Ég get ekki ímyndað mér heilbrigða foreldra sem gefa börnum sínum byssur áður en þau læra að lesa!
Þarna geta börnin fengið ráðgjöf hvernig byssur henta þeim eins og við myndum ráðleggja börnum okkar í að kaupa sér hluti í leikfangaverslun!

Ég ætla að vitna í dálk sem er á þessari síðu:

Welcome to the NRA Kooky Kidz Korner boys and girls! Hope you're packin' heat and lookin' for fun - cuz we're all about playing with high-caliber guns! Old Mr. Boring never shows his head ‘round here, and if’n he does, we'll slay him like a deer!

Fyrir þá sem vilja athuga síðuna þá er slóðin:

http://www.nra-kkk.org/