Jæja núna eigið þið sennilega eftir að halda að ég sé svona unglingur í uppreisn en sattast að segja þá lít ég ekki á mig þannig. Núna er ég í smá veseni út af því að ég var að halda party heima hjá mér á fimmtudegi og föstudegi og var að sjálfsögðu einn heima. Jæja núna var ég búinn að plana þetta frekar vel og fá bara fólk sem að ég þekki og kanski eitthverja vini þeirra og allt í gúdí fíling, ég var búinn að fara með allt það sem mömmu þykir vænt um (allt brothætt og þannig) í þvottahús og læsti hurðinni og svo fór maður bara að djamma, en ég ættla nú ekki að segja frá partyunum en nágrannarnir eru eitthvað skyld einu frændfólki mínu og frétti svo ekki öll fjölskyldan mín (nema mamma) þetta party og núna verð ég að segja mömmu þetta, að mínu mati þá er þetta bara afskiptasemi, þetta hefur gerst áður þá stal ég bílnum hennar mömmu þegar hún var að vinna og var bara aðeins að keyra á honum og svo fer ég heim, kemur þá ekki vinkona hennar mömmu og bustar mig!!! og þá fréttu allir þetta líka nema mamma (seinust aftur)

Núna er ég orðinn soldið fúll því að ég verð nátturulega að segja mömmu frá þessu og líka það að ég hafi verið að drekki sem að hún mun allveg hata því að pabbi minn er því miður alki (kominn úr meðferð) og hún er hrædd um að þetta sé ættgengt en það eru allir unglingar á mínum árum (eða 95% af þeim) að drekka og reykja við viss tækifæri og það væri nú fínt að geta komið því í hausinn á henni að ég sé ekki þessi 5% og þá myndi ég nú vona að hún myndi passa mig þá á öðruvísi hátt.

Til dæmis: Að kaupa fyrir mig bjór (ég myndi að sjálfsögðu borga hann) í staðinn fyrir að láta mig stela eitthverju niðri eða reyna að redda mér landa.

Núna væri nú gaman að sjá hvað allar mömmurnar sem að nota þetta að sjá hvað þeim finnst um þetta og svo á ég nú eftir að segja mömmu frá þessu á eftir þannig you guys better hurry að skamma mig :Þ