Ég fékk þennann texta sendann í tölvupósti.Mér þykir þessi texti frábær,umhugsunarverður og eiga fyllilega rétt á sér.

Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að
hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá
degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla
fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu.
Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir
naglarnir
væru horfnir.
Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú
hefur
staðið þig með prýði en, sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður
aldrei
aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur
það
eftir
sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og
dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.
“Vinir” eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér? Nú er alþjóðleg vinavika. Sýndu vinum þínum hve mikils þú metur þá og sendu þeim þetta bréf. Það getur vel verið að þú fáir bréfið til baka og þá finnur þú að þeir meta vináttu þína. Þá hefur þú safnað um þig vinahring. Gleðilega vinaviku!!
Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Sendu nú bréfið til
vina eða fjölskyldu. Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í
grindverkinu þínu.