Jæja þá er maður kominn með sinn eiginn kúlubúa og vantar smá ráð og upplýsingar!

Þannig er mál með vexti að ég er alveg ótrúlega þreytt og uppgefin og virðist ekki einu sinni hafa orku í að ganga! Getið þið gefið mér góð ráð í sambandi við þetta og í leiðinni upplýsingar um gott yoga eða leikfimi fyrir óléttar konur, góðar styrkingar æfingar en jafnframt og sérstaklega góð slökun.

Ég veit að konur eru oft uppgefnar á meðgöngu en eitthvað hlýtur að vera hægt að gera, sérstaklega þar sem ég er ofurduglega að borða hollt og fá öll vítamín.

HJÁLP

Craic