Vá ég var að komast að því að ég er orðin ólétt loksins :o) og ég er alveg í skýunum, bara get ekki hætt að brosa. Ég og maðurinn minn erum búin að vera að reyna í rúmt ár að eignast barn og það tóks :o) vá hvað þetta er skrýtin tilfinning ég sagði manninum mínum frá þessu í morgun og hann var svo ánægður og montin að ég hélt að hann myndi springa.

Núna vil ég endilega fá sem flest ráð um hvernig best sé að haga sér á meðgöngunni hvað má og má ekki og allt þar á milli. Öll ráð vel þegin :o)

Ég vil líka segja við þær sem eru á fullu að reyna að eignast barn en ekkert virðist ganga að halda bara áfram, það er ekki eins og það að njóta ásta með manninum sínum sé eitthvað leiðinlegt :o)
Þetta mun takast hjá ykkur eins og mér :o)

Bæjó Sweetbabe og bumbubúinn :o)